Hvað er Google Fræðasetur?
Google Fræðasetur er einföld leið til framkvæma víðtæka leit að fræðilegum textum. Þú getur leitað í fjölda fræðigreina og heimilda og allt þetta er á einum stað: Ritrýndar greinar, lokaritgerðir, bækur, ágrip og greinar, efni frá útgefendum fræðirita og sérfræðingasamfélögum, geymslur með óútgefnu efni, háskólar og önnur fræðasamtök. Google Fræðasetur hjálpar þér við að finna þær rannsóknir sem varða mestu í heimi fræðilegra rannsókna.
Eiginleikar Google Fræðaseturs
- Leitaðu í ólíkum heimildum á einum hentugum stað
- Uppgötvaðu ritgerðir, ágrip og tilvitnanir
- Finndu greinina í heild í gegnum bókasafnið þitt eða á vefnum
- Lærðu um mikilvægar ritgerðir á hvaða fræðisviði sem er
Hvernig er greinum raðað?
Google Fræðasetur leitast við að flokka greinar á sama hátt og rannsóknarfólk gerir, með því að vega og meta heildartexta hverrar greinar, höfundinn, ritið sem greinin birtist í og hversu oft vitnað hefur verið í greinina í öðrum fræðiritum. Þær niðurstöður sem mestu varða birtast alltaf á fyrstu síðunni.
Vinsamlegast láttu okkur vita ef þú ert með einhverjar tillögur, spurningar eða athugasemdir um Google Fræðasetur. Við gerum okkur grein fyrir því að við stöndum í þakkarskuld við alla þá fræðimenn sem hafa gert Google sjálft að veruleika með vinnu sinni og við vonumst til að gera Google Fræðasetur eins gagnlegt fyrir þetta samfélag og mögulegt er. Okkur finnst allir eiga að fá tækifæri til að standa á herðum mikilla manna.
Útgefendur – sjáið til þess að efni frá ykkur sé til staðar á Google Fræðasetri |
Bókasafnsfræðingar – hjálpið gestum ykkar að kynnast safnkostinum |
|
Google Fræðasetur getur aukið alþjóðlegan sýnileika efnisins þíns. Við vinnum að því með útgefendum fræðilegs efnis að skrá verk í öllum rannsóknargreinum og gera fólki kleift að leita í þeim á Google Fræðasetri. Frekari upplýsingar um stefnu okkar og tæknilegar upplýsingar fyrir útgefendur fræðilegs efnis og samfélög fræðimanna. |
Google Fræðasetur getur aðstoðað gesti við að nota allt það sem bókasafnið þitt hefur upp á að bjóða. Við bjóðum upp á tvær lausnir til að aðstoða bókasafnsgesti við að finna fræðileg rit í tölvu- og bókakosti safnsins. Frekari upplýsingar um hvernig bókasafnið þitt getur tekið þátt. |
